Friðrik Dór & SinfoniaNord – beint streymi frá Hörpu, laugardaginn 31. október kl. 20:00

Beint streymi

Friðrik Dór & SinfoniaNord

31. október 2026

Tónleikarnir hefjast eftir

00

Dagar

00

Klst.

00

Mín.

00

Sek.

Niðurtalning

kl. 19:30

Tónleikarnir hefjast

kl. 20:00

Við mælum með að þú gangir frá kaupum og undirbúir áhorfið tímanlega. Þannig hefurðu nægan tíma til að bregðast við ef eitthvað kemur upp á.

Nú þegar er opið fyrir kaup á eftirfarandi streymisveitum

Sýn

Í myndlykli Sýnar

Farðu á forsíðu sjónvarpsviðmóts Sýnar og flettu niður að Viðburðir í valmyndinni. Veldu tónleikana og smelltu á Kaupa.

Að loknum kaupum opnast aðgangur að rás 900, þar sem tónleikarnir verða sýndir.

AthugiðÍ myndlykli Sýnar verða tónleikarnir aðgengilegir í 48 klukkustundir eftir að þeim lýkur.

Í appi Sýnar eða á sjónvarp.syn.is

Ef þú ert ekki með myndlykil geturðu farið inn á sjónvarp.syn.is, skráð þig inn og valið Viðburðir neðst á síðunni.

Veldu tónleikana og gakktu frá kaupum. Rásin opnast síðan í appinu á tónleikadeginum.

AthugiðTímavélin í appi Sýnar er aðeins 4 klukkustundir. Því gildir 48 klukkustunda aðgengið ekki um áhorf í appinu.

Síminn

Í myndlykli Símans

Farðu í VOD-leigu, veldu Viðburðir og keyptu aðgang að tónleikunum.

Eftir kaup geturðu horft á tónleikana í tímaflakki í allt að 48 klukkustundir.

Í Apple TV eða öðrum tækjum án myndlykils

Ef þú ert ekki með myndlykil Símans geturðu farið inn á siminn.is, skráð þig inn í Sjónvarp Símans og keypt aðgang að tónleikunum.

Að loknum kaupum opnast aðgangurinn í tækinu þínu.

PIN-númer við kaup

Ef beðið er um PIN-númer við kaup er sjálfgefið númer 1234, hafi því ekki verið breytt.

Ef þú hefur breytt PIN-númerinu þarftu að nota þitt eigið númer.

Livey

Netstreymi – einfalt og þægilegt

Smelltu á hlekkinn á Livey-netstreymið hér fyrir neðan, skráðu þig inn og gakktu frá greiðslu.

Mundu að geyma notendanafn og lykilorð svo þú getir auðveldlega skráð þig inn þegar tónleikarnir hefjast.

Hlekkur á streymið kemur fljótlega.

Nýtt hjá Livey: snjallsjónvarpsapp

Nú geturðu sótt Livey-snjallsjónvarpsappið beint í sjónvarpið þitt. Appið er fáanlegt fyrir:

  • LG Smart TV
  • Samsung Smart TV
  • Google TV

Þannig geturðu notið tónleikanna á stóra skjánum heima í stofu.

Góð ráð fyrir tónleikakvöldið

Við hvetjum alla til að ganga frá kaupum tímanlega og prófa að skrá sig inn áður en útsending hefst. Niðurtalning hefst kl. 19:30 og tónleikarnir kl. 20:00.

Gerðu þér gott kvöld, komdu þér vel fyrir og njóttu tónleikanna!

Góða skemmtun!